Skipulag heimilisins
Skipulag heimilisins – allt á einum stað! Er stundum erfitt að halda utan um allt sem er í gangi hjá fjölskyldunni? Æfingar, fundir, afmæli, viðburðir og allt hitt sem þarf að muna? Þá er Skipulag heimilisins tilvalið fyrir þig!
Stórt og praktískt skipulagsdagatal sem hjálpar þér að halda utan um annasama daga og hafa yfirsýn yfir það sem fram undan er.
Fáanlegt í 4 mismunandi útgáfum.
Stærð: A2 (42 × 59,4 cm)
Efni: Prentað á glansandi plast sem gerir dagatalið bæði endingargott og auðvelt í notkun.
Skrifaðu, þurrkaðu út og notaðu aftur! Með töflutússum geturðu fyllt inn skipulag mánaðarins, merkt við mikilvæga daga og breytt plönunum eftir þörfum. Þegar nýr mánuður tekur við þurrkarðu einfaldlega út og byrjar upp á nýtt.
Eitt dagatal – endalaust skipulag! Fullkomið fyrir annasöm heimili sem vilja hafa allt á hreinu, á einum stað og sýnilegt öllum fjölskyldumeðlimum. Sif hannar – fallegt, einfalt og praktískt!
Hægt að fá með vegglímiðim (dobblesticker) til að hengja upp
ATH: afhending getur verið allt að tvær vikur